Heimild: mbl.is
„ÍA og Breiðablik áttu flesta leikmenn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á keppnistímabilinu 2017. Þetta kemur í ljós þegar farið er yfir bakgrunn allra leikmanna sem spiluðu í deildinni á árinu," segir í umfjöllun sem Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður, tók saman í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
ÍA og Breiðablik áttu hvort um sig 21 uppaldan leikmann sem lék í Pepsi-deildinni í sumar.
Hjá ÍA léku aðeins tveir af þessum 21 ekki hjá félaginu. Andri Adolphsson var í Íslandsmeistaraliði Vals og Arnþór Ingi Kristinsson sinnti góðu starfi á miðjunni hjá Víkingi Reykjavík.
Sex Blikar léku ekki í Kópavoginum. Þar af voru tveir hjá KR, Finnur Orri Margeirsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson og tveir hjá KA, Guðmann Þórisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson.

Stjarnan kemur svo í þriðja sætinu hvað varðar uppalda leikmenn í Pepsi-deildinni með 15 leikmenn. Ellefu af þessum 15 leikmönnum léku með Stjörnunni í sumar.
Nánar er hægt að lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.
Vel gert @BreidablikFC & @ia_akranes https://t.co/ZsfOVTs5FF @vidirsig & @mblsport 🇮🇸👏
— Total Football (@totalfl) December 16, 2017
Athugasemdir