Eins og alþjóð veit þá náði íslenska landsliðið frábærum úrslitum í gær þegar við gerðum 1-1 jafntefli við það argentínska.
Margar stjörnur eru í argentínska landsliðinu og sú skærasta er að sjálfsögðu Lionel Messi, einn besti knattspyrnumaður sögunnar.
Messi náði ekki að skora sama hvað hann reyndi. Hannes Þór Halldórsson varði meira að segja vítaspyrnu frá honum.
Myndir af erfiðleikum Messi má sjá hér að neðan.
Athugasemdir