Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 17. október 2014 09:30
Magnús Már Einarsson
Pelle og Koeman bestir í september
Ronald Koeman.
Ronald Koeman.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Southampton, hefur verið útnefndur stjóri september mánaðar í ensku úrvalsdeidlinni og Graziano Pelle framherji liðsins hefur verið útnefndur leikmaður mánaðarins.

Southampton vann alla þrjá leiki sína í september gegn Newcastle, Swansea og QPR.

Pelle, sem kom til Southampton í sumar, var einnig í stuði en hann skoraði þrjú mörk í mánuðinum.

Tvö af mörkunum komu í 4-0 sigrinum á Newcastle og þá skoraði hann magnað sigurmark gegn QPR.
Athugasemdir
banner
banner
banner