Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 17. nóvember 2017 13:58
Elvar Geir Magnússon
Klopp: Býstu við því að ég svari þessari spurningu?
Jurgen Klopp í viðtali.
Jurgen Klopp í viðtali.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hafi fengið grænt ljós á að gera nýtt tilboð í varnarmanninn Virgil van Dijk hjá Southampton í janúarglugganum.

Liverpool reyndi án árangurs að næla í Van Dijk í sumar.

Klopp var spurður út í hollenska miðvörðinn á fréttamannafundi í dag.

„Býstu við því að ég svari þessari spurningu? Um eitthvað sem gerðist í sumar? Ég hef ekkert um þetta að segja," svaraði Klopp.

Hann var þá spurður að því hvort það yrði erfitt fyrir Van Dijk að spila á Anfield á morgun en Southampton mætir í heimsókn.

„Vonandi. Það á að vera erfitt fyrir alla leikmenn að spila á Anfield. Vonandi verður það erfitt fyrir hann."

Klopp var ferskur á fréttamannafundinum og sagði að heilsan væri góð en hann fór í skoðun á sjúkrahúsi eftir að hann kom heim úr ferðalagi til Suður-Afríku.

Klopp var einnig spurður út í meiðslamálin hjá Liverpool.

„Við þurfum að bíða með Sadio Mane, hann verður skoðaður í dag. Adam Lallana hefur æft síðustu þrjá daga og það er frábært að fá hann til baka en við flýtum okkur ekki of mikið," segir Klopp.

„Við eigum þrjá leiki í næstu viku og Adam er ekki að fara að spila 90 mínútur á morgun."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner