Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. apríl 2018 15:02
Elvar Geir Magnússon
Grétar Rafn og félagar ráða Joey Barton sem stjóra (Staðfest)
Joey Barton er nýr stjóri Fleetwood.
Joey Barton er nýr stjóri Fleetwood.
Mynd: Getty Images
Fleetwood Town hefur tilkynnt að Joey Barton verði nýr knattspyrnustjóri félagsins frá og með 2. júní. Hann gerði þriggja ára samning.

Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood.

Hinn umdeildi Barton er 35 ára en hann spilaði meðal annars með Manchester City, Queens Park Rangers og Burnley á ferli sínum.

Barton þekkir stjórnarformann Fleetwood vel en það er viðskiptamaður sem heitir Andrew Pilley.

Barton segist vera í skýjunum með tækifærið og segist vera að taka við metnaðarfullu félagi.

Stjórnarformaðurinn Pilley segist mjög spenntur.

„Þetta er stór ráðning fyrir félagið. Joey hefur mikla reynslu og ég tel að hann gæti orðið einn besti stjórinn af nýrri kynslóð. Ég hef þekkt hann í mörg ár og er viss um að hann sé tilbúinn fyrir þetta skref," Pilley.

Barton hefur verið mjög umdeildur á sínum ferli og ekki legið á skoðunum sínum. Hann hefur verið þekktur fyrir stuttan kveikiþráð og þá hefur hann verið í banni frá afskiptum af fótbolta síðan í fyrra vegna þess að hann var að veðja á fjölda leikja þegar hann lék með Burnley.

Þjóðverjinn Uwe Rösler var rekinn sem stjóri Fleetwood í febrúar og hefur bráðabirgðastjóri, John Sheridan, stýrt liðinu síðan en það er í 14. sæti ensku C-deildarinnar.
Stöðutaflan England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Portsmouth 45 27 13 5 76 41 +35 94
2 Derby County 45 27 8 10 76 37 +39 89
3 Bolton 45 25 11 9 83 48 +35 86
4 Peterboro 45 25 8 12 86 58 +28 83
5 Barnsley 45 21 12 12 81 63 +18 75
6 Lincoln City 45 20 14 11 65 38 +27 74
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Oxford United 45 21 11 13 77 55 +22 74
8 Blackpool 45 21 10 14 63 45 +18 73
9 Stevenage 45 18 14 13 55 45 +10 68
10 Wycombe 45 16 14 15 59 55 +4 62
11 Leyton Orient 45 17 11 17 50 54 -4 62
12 Exeter 45 17 10 18 45 59 -14 61
13 Wigan 45 19 10 16 61 56 +5 59
14 Northampton 45 17 8 20 56 65 -9 59
15 Bristol R. 45 16 9 20 52 66 -14 57
16 Charlton Athletic 45 11 20 14 64 64 0 53
17 Reading 45 15 11 19 65 68 -3 50
18 Shrewsbury 45 13 9 23 34 64 -30 48
19 Cambridge United 45 12 11 22 39 61 -22 47
20 Burton 45 12 10 23 39 64 -25 46
21 Cheltenham Town 45 12 8 25 40 63 -23 44
22 Fleetwood Town 45 9 13 23 46 72 -26 40
23 Port Vale 45 10 10 25 41 74 -33 40
24 Carlisle 45 7 9 29 41 79 -38 30
24 Forest Green 46 6 9 31 31 89 -58 27
Athugasemdir
banner
banner
banner