Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. apríl 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Samúel Kári í liði vikunnar
Samúel Kári.
Samúel Kári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Valerenga, var valinn í úrvalslið vikunnar í norsku úrvalsdeildinni hjá Verdens Gang.

Valerenga burstaði Kristianstad 6-1 um síðustu helgi og Samúel átti góðan leik þar.

Samúel skoraði eitt mark og lagði upp tvö í leiknum.

Undanfarin ár hefur Samúel átt fast sæti í U21 árs landsliðinu en hann hefur einnig verið að stíga sín fyrstu skref með A-landsliðinu.

Samúel spilaði gegn Mexíkó í síðasta mánuði sem og gegn Indónesíu í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner