Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 18. október 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Hreinn Ingi framlengir við Þrótt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hreinn Ingi Örnólfsson leikmaður Þróttar hefur framlengt samning sinn við félagið til eins árs og er því samningsbundinn Þrótti til næstu tveggja ára.

,,Varnarmaðurinn stóri og stæðilegi lék lykilhlutverk í liði Þróttar á núliðnu tímabili en hann stóð vaktina í hjarta varnarinnar með stakri prýði og hefur vaxið með hverjum leiknum," segir á heimasíðu Þróttar.

,,Það er mikil ánægja innan félagsins að leikmaðurinn hafi framlengt samning sinn enda von allra hjá Þrótti að hann haldi áfram að bæta sig."

Síðasta sumar lék Hreinn 25 leiki fyrir Þrótt í deild og bikar og skoraði í þeim leikjum 2 mörk. Alls hefur Hreinn leikið 38 leiki fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner