Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. október 2014 22:30
Alexander Freyr Tamimi
Zamora: Yrði fáránlegt að reka Redknapp
Bobby Zamora.
Bobby Zamora.
Mynd: Getty Images
Bobby Zamora, framherji Queens Park Rangers, segir að það yrði fáránlegt að reka knattspyrnustjórann Harry Redknapp.

QPR er á botni ensku úrvalsdeildarinnar með einungis fjögur stig eftir sjö leiki og mætir liðið Liverpool á morgun. Hefur staða Redknapp verið mikið í umræðunni.

,,Þessir orðrómar eru fáránlegir," sagði Zamora.

,,Harry hefur gríðarlega reynslu og hefur séð þetta allt saman: fall, fara upp um deild, úrslitaleiki. Það er fáránlegt að ræða þetta með svona marga leiki eftir."

,,Við styðjum allir Harry. Þú getur unnið tvo leiki og þá ertu kominn mun ofar."


Athugasemdir
banner
banner