Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. mars 2017 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho sannfærði Sir Alex Ferguson um að ferðast með Man Utd
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Manchester United segir að Sir Alex Ferguson hafi reynt að halda sig í fjarlægð frá liðinu en Mourinho náði að sannfæra hann um að ferðast með liðinu og koma í búningsherbegið.

„Eftir að ég tók við, þá kom hann aftur. Hann kom og heimsótti fólkið sem hann starfaði með hér fyrir mörgum árum og nú ferðast hann með okkur," sagði Mourinho

„Þetta var það sem ég sagði við hann: það passar ekki þegar við erum að spila í London og förum með einka lest og þú Sir Alex ferð með bíl. Þú ert ekki að fara með bíl, nei, farðu með lest, með liðinu"

Mourinho verður að sjálfsögðu á hliðarlínunni í dag þegar Manchester United heimsækir fallbaráttulið Middlesbrough í hádeginu.

Athugasemdir
banner
banner