Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 19. apríl 2014 11:30
Fótbolti.net
Hlustaðu í beinni - 12:00 Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Haukur Ingi Guðnason,
Haukur Ingi Guðnason,
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Smelltu hér til að hlusta á X-ið FM 97,7 í beinni

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fer ekki í páskafrí og verður á sínum stað á X-inu FM 97,7 í dag milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.

Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Elvar Geir Magnússon eru umsjónarmenn þáttarins.

Haukur Ingi Guðnason sálfræðingur verður á línunni og ræðir aðeins um geðsjúkdóma og fótbolta en síðustu vikur hafa þrír íslenskir fótboltamenn stigið fram og opinberað baráttu sína við geðsjúkdóma.

Það styttist í að boltinn fari að rúlla í Pepsi-deildinni og tveir leikmenn frá nýliðum Víkings Reykjavík mæta í gasklefann. Það eru Halldór Smári Sigurðsson og Tómas Guðmundsson.

Þá verður að sjálfsögðu rætt ítarlega um enska boltann eins og venjulega en Snorri Sturluson íþróttasérfræðingur mætir í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner