Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. maí 2015 16:00
Fótbolti.net
Godsamskipti
Stjörnustelpur kíktu á Saffran í gær.
Stjörnustelpur kíktu á Saffran í gær.
Mynd: Twitter
Gamlir Predator skór.
Gamlir Predator skór.
Mynd: Twitter
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum. Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter!

Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Logi Bergmann Eiðsson, Stöð 2 Sport
Mér segir svo hugur, miðað við frammistöðuna á móti WBA, að leikmenn Chelsea hafi eitthvað verið að hitta mennina um helgina. #fotboltinet

Kristján Óli Sigurðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks
Oddur Helgi fær frí hjá KSÍ í bæði bikar og Pepsídeildinni á morgun. Væri gaman ef þetta er meðvituð ákvörðun hjá sambandinu. #KSÍ #Flaggið

Skallagrímur
Skallarnir stíma á Ísafjörð í góðum gír. Ekta rútustemming og mannskapurinn er að gíra sig upp fyrir leik kvöldsins. #fotboltinet #bíska

Stjarnan
Við getum staðfest að Rúnar Páll er ekki farinn til Tyrklands að ræða við Fenerbache #InnMedBoltann #fotboltinet #NoJoke

HK, meistaraflokkur karla
Sattir með að vera komnir afram og viljum alvöru leik i næstu umferð #2Easy

Kristján Steinn Magnússon, Þróttur Vogum
Get ekki orða bundist. Sjaldan verið rændur eins augljósri vítaspyrnu og í kvöld og það á 93. mínútu. Alveg óþolandi að dómarar landsins klikki á svona ákvörðunum aftur og aftur. Þeir fá stundum ósanngjarna gagnrýni en þessi stétt á mjög langt í land á Íslandi. Að því sögðu óska ég Grindvíkingum til hamingju með sigurinn, hann var fyllilega verðskuldaður. #fotboltinet

Óttar Kristinn Bjarnason, fótboltaáhugamaður
Það hjálpar örugglega þegar gamlar hetjur eru að hrauna yfir hann fyrir að tjá sig. #TheSterlingSaga

Kristján Atli Ragnarsson, kop.is
Eitthvað segir mér að Gerrard eigi eftir að droppa sprengjum um ástandið & óánægju leikmanna undir stjórn FSG/Rodgers þegar hann er farinn.






Athugasemdir
banner
banner
banner