Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. maí 2018 13:30
Ingólfur Stefánsson
Mark Boufal gegn WBA valið mark ársins í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Sofiane Boufal skoraði mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Mark Boufal gegn WBA í október hefur verið valið flottasta mark tímabilsins í deildinni.

Boufal fékk boltann á eigin vallarhelmingi og hljóp yfir allan völlinn til þess að skora magnað mark sem reyndist eftir á einnig gífurlega mikilvægt. Markið tryggði Southampton 1-0 sigur gegn WBA.

Boufal er mjög líklega á förum frá Southampton en leikmaðurinn hefur ekki spilað fyrir liðið síðan 31. mars eftir að hafa lent í deilum við Mark Hughes stjóra liðsins.

Hann var ekki valinn í leikmannahóp Marokkó fyrir HM í Rússlandi.

Mark tímabilsins má sjá hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner