Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. ágúst 2017 17:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Liverpool og C. Palace: Andrew Robertson heillaði
Mynd: Getty Images
Liverpool vann Crystal Palace í leik í ensku úrvalsdeildinni í dag, 1-0. Eina mark leiksins skoraði Sadio Mane á 73. mínútu.

Þetta var góður sigur fyrir Liverpool sem er núna með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Palace-menn eru án stiga enn sem komið er.

Sky Sports tók saman einkunnarpakka eftir leikinn og þar fá allir leikmenn Liverpool sex eða meira. Andrew Robertson, sem var að spila sinn fyrsta leik, var maður leiksins.

Hér að neðan eru einkunnirnar.

Einkunnir Liverpool: Mignolet (6), Milner (6), Klavan (6), Gomez (6), Matip (7), Robertson (8), Henderson (7), Wijnaldum (6), Mane (7), Firmino (6), Sturridge (6).

Varamenn: Salah (6), Solanke (6).

Einkunnir Crystal Palace: Hennessey (8), Fosu-Mensah (6), Tomkins (6), Dann (6), Ward (6), Van Aanholt (6), Milivojevic (5), Puncheon (6), Loftus-Cheek (7), Townsend (6), Benteke (5).

Varamenn: McArthur (6), Kaikai (6).

Maður leiksins: Andrew Robertson
Athugasemdir
banner
banner
banner