Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. janúar 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
West Ham blandar sér í baráttuna um Fletcher
Darren Fletcher.
Darren Fletcher.
Mynd: Getty Images
West Ham hefur blandað sér í baráttuna um Darren Fletcher miðjumann Manchester United.

Spænska félagið Valencia hefur einnig áhuga á Fletcher auk þess sem WBA reyndi að fá hann á láni ú tímabilið en án árangurs.

Hinn þrítugi Fletcher á einungis hálft ár eftir af samningi sínum við United og ekki er ólíklegt að félagið selji hann í þesum mánuði.

Fletcher var í byrjunarliði í fyrstu þremur deildarleikjum tímabilsins en síðan þá hefur hann verið meira og minna úti í kuldanum.

Síðasti leikur Fletcher í byrjunarliði var gegn Yeovil í enska bikarnum fyrr í mánuðinum.
Athugasemdir
banner
banner