Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 20. ágúst 2014 23:38
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Páll: Hef aldrei upplifað annað eins
Rúnar Páll Sigmundsso.n
Rúnar Páll Sigmundsso.n
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sína stráka þrátt fyrir 3-0 tap gegn stórliði Inter í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  3 Inter

,,Frammistaðan sem slík var mjög góð í alla staði. Leikmennirnir gerðu það sem við lögðum upp með og spiluðu agaða vörn," sagði Rúnar Páll við fjölmiðla eftir leik.

,,Við fengum ágætis upphlaup í seinni hálfleik þegar við fórum framar en síðan kom þetta þriðja mark sem er ágætis mark. Við náðum ekki að setja pressu í því marki."

,,Heilt yfir var þetta frábær frammistaða og og frábær stemning á vellinum. Ég hef aldrei upplifað annað eins."

,,Ég hef komið á Laugardalsvöll á landsleiki síðan ég var lítill drengur en ég hef aldrei upplifað svona stemningu. Það er frábært fyrir leikmennina að upplifa þetta og þetta fer allt í reynslubankann."


Síðari leikurinn fer fram í næstu viku og Rúnar viðurkennir að möguleikar Stjörnunnar séu ekki miklir.

,,Við förum út og reynum að gera okkar besta. Það verður erfitt að vinna upp þriggja marka forystu en það er allt hægt í þessu. Við förum út með gleðina í fyrirrúmi og leikskipulag. Það verður ævintýri að spila á frábærum velli."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner