Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 21. maí 2015 10:31
Magnús Már Einarsson
Theodór Elmar í lokaviðræður við Randers
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason er að fara í lokaviðræður við Randers um nýjan samning.

Elmar verður samningslaus í sumar en samningaviðræður hans við félagið hafa ekki borið árangur ennþá.

„Við ætlum að fara í lokaviðræður og ég tek ákvörðun í kjölfarið," sagði Elmar við bold.dk.

„Ég er líka með aðra möguleika og við munum skoða þetta allt saman. Ég skoða þetta bæði út frá íþróttalegum og efnahagslegum sjónarmiðum."

„EM er á næsta ári og ég þarf að taka ákvörðun til að ég eigi sem bestan möguleika á að fara með þangað. Það eru margir hlutir sem við þurfum að skoða."

Athugasemdir
banner
banner
banner