Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 21. júní 2017 05:55
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Álfukeppnin í dag - Heimamenn taka á móti Evrópumeisturunum
Cristiano Ronaldo og félagar mæta gestgjöfunum í Rússlandi
Cristiano Ronaldo og félagar mæta gestgjöfunum í Rússlandi
Mynd: Getty Images
Miðvikudagur 21. júní
15:00 Rússland - Portúgal (RÚV)
18:00 Mexíkó - Nýja-Sjáland (RÚV 2)

Tveir leikir fara fram í Álfukeppninni í dag en spilað er í A riðli.

Gestgjafarnir í Rússlandi taka á móti Evrópumeisturunum í Portúgal á Otkrytiye Arena í Moskvu. Fyrir leikinn eru Rússar einir efstir í riðlinum eftir sigur á Ný-Sjálendingum í opnunarleiknum á meðan Portúgal gerði jafntefli við Mexíkó í fyrstu umferðinni. Leikurinn hefst klukkan 15.

Það eru svo Mexíkó og Nýja-Sjáland sem mætast í seinni leik dagsins klukkan 18.

Athugasemdir
banner
banner
banner