Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. ágúst 2014 15:30
Elvar Geir Magnússon
Khedira hafnaði samningstilboði Real Madrid
Mynd: Getty Images
Þýski heimsmeistarinn Sami Khedira gæti verið á leið frá Real Madrid. Carlo Ancelotti, þjálfari liðsins, ýjaði að því á fréttamannafundi í morgun.

„Khedira á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og hefur hafnað tilboði um nýjan samning," sagði Ancelotti.

Khedira hefur þó enn ekki farið fram á sölu en hann hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal.

„Bíðum og sjáum hvað gerist," sagði Ancelotti en eins og við greindum frá fyrr í dag hefur Angel Di Maria farið fram á sölu frá Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner