Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. október 2017 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho hreinskilinn: Betra liðið vann
Mynd: Getty Images
„Liðið sem vildi það meira vann," sagði Jose Mourinho, stjóri Manchester United, eftir 2-1 tap gegn nýliðum Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni á þessum ágæta laugardegi.

„Þegar betra liðið vinnur er ekkert hægt að segja."

„Ég veit ekki af hverju þeir vildu þetta meira. Ég mun ekki gagnrýna leikmenn mína í fjölmiðlum núna. Ég mun skoða leikinn betur, og ef ég þarf, þá mun ég gagnrýna leikmennina."

„Frammistaða okkar kom mér á óvart, ég bjóst ekki við þessu. Liðið sem sýndi tilfinningar, áræðni, kraft og þrá, liðið sem spilaði leik lífs síns vann þennan leik," sagði hreinskilinn Mourinho.

„Við áttum skilið að tapa þessum leik, það á refsa slökum liðum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner