Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. janúar 2014 11:06
Magnús Már Einarsson
Arturo Vidal: Ég er besti miðjumaður í heimi
Mynd: Getty Images
Sjálfstraustið er mikið hjá Arturo Vidal miðjumanni Juventus í augnablikinu. Þessi 26 ára gamli leikmaður segist einfaldlega vera besti miðjumaður í heimi.

,,Ég er besti leikmaður í heimi í minni stöðu. Það er svo einfalt að mínu mati," sagði Vidal.

,,Það eru margir leikmenn í minni stöðu sem reyna að spila eins og ég og vilja ná sama leikstíl og ég."

,,Það er nokkuð ljóst að mínu mati að ég er bestur í minni stöðu. Enginn er jafn duglegur að sinna varnarvinnu og ég og skorar síðan svona mörg mörk á hinum endanum."


Vidal er 26 ára gamall en hann hefur skorað 15 mörk í 28 leikjum á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner