Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. maí 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Sonur Mourinho fær að eiga medalíuna
Gjafmildur.
Gjafmildur.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, ætlar að gefa syni sínum medalíuna fyrir sigurinn í ensku úrvalsdeildinni.

Þegar Chelsea varð meistari árið 2006 henti Mourinho medalíu sinni upp í stúku og stuðningsmaður Chelsea sem krækti í medalíuna seldi hana síðar á uppboði á 16 þúsund pund eða 3,2 milljónir króna.

Chelsea fær medalíur sínar afhentar eftir leikinn gegn Sunderland í lokaumferðinni á sunnudag.

„Sonur minn safnar núna alls konar dóti," sagði Mourinho.

„Hann safnar öllu. Á sínum tíma var hann of ungur í þetta en í augnablikinu safnar hann öllu. Treyjum, medalíum, öllu. Hann stelur öllu af mér."
Athugasemdir
banner
banner