Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. júní 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikjaplanið í Championship: Íslendingar mætast í 2. umferð
Aron Einar og Birkir mætast í 2. umferð.
Aron Einar og Birkir mætast í 2. umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er búið að gefa út leikjaplan fyrir neðri deildirnar í Englandi fyrir komandi tímabil sem hefst í ágúst næstkomandi.

Í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, leika þónokkrir Íslendingar og sú deild er vinsæl hjá íslensku þjóðinni.

Það hafa aldrei fleiri skellt sér út á leiki í neðri deildum Englands og á síðasta tímabili og gera má ráð fyrir því að sú tala muni fara hækkandi á næsta tímabili; áhuginn er meiri!

Það er tilvalið hjá Íslendingum, sem hafa áhuga á neðri deildarboltanum á Englandi, að skella sér á leik Cardiff City og Aston Villa 12. ágúst, en með liðunum leik tveir íslenskir landsliðsmenn. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliðinn sjálfur, er á mála hjá Cardiff og með Aston Villa leikur Birkir Bjarnason.

Það er spurning hvort Aron Einar verði leikmaður Cardiff þegar Aston Villa kemur í heimsókn þann 12. ágúst. Hann var í gær orðaður við Maccabi Tel Aviv og Legia Varsjá.

Hér að neðan má sjá lista yfir 1. og 2. umferðina í Championship.

1. umferð:
04/08/2017 19:45 Sunderland v Derby County
05/08/2017 17:30 Aston Villa v Hull City
05/08/2017 15:00 Bristol City v Barnsley
05/08/2017 15:00 Burton Albion v Cardiff City
05/08/2017 15:00 Fulham v Norwich City
05/08/2017 15:00 Ipswich Town v Birmingham City
05/08/2017 15:00 Nottingham Forest v Millwall
05/08/2017 15:00 Preston North End v Sheffield Wednesday
05/08/2017 15:00 Queens Park Rangers v Reading
05/08/2017 15:00 Sheffield United v Brentford
05/08/2017 15:00 Wolverhampton v Middlesbrough
06/08/2017 16:30 Bolton Wanderers v Leeds United

2. umferð:
12/08/2017 15:00 Barnsley v Ipswich Town
12/08/2017 15:00 Birmingham City v Bristol City
12/08/2017 15:00 Brentford v Nottingham Forest
12/08/2017 15:00 Cardiff City v Aston Villa
12/08/2017 15:00 Derby County v Wolverhampton
12/08/2017 15:00 Hull City v Burton Albion
12/08/2017 15:00 Leeds United v Preston North End
12/08/2017 15:00 Middlesbrough v Sheffield United
12/08/2017 15:00 Millwall v Bolton Wanderers
12/08/2017 15:00 Norwich City v Sunderland
12/08/2017 15:00 Reading v Fulham
12/08/2017 15:00 Sheffield Wednesday v Queens Park Rangers

Leikjaplan - Championship
Leikjaplan - League 1
Leikjaplan - League 2
Athugasemdir
banner