Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. september 2017 11:45
Elvar Geir Magnússon
Man Utd vill fá 16 ára leikmann Genoa
Pietro Pellegri.
Pietro Pellegri.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur áhuga á 16 ára ítölskum leikmanni, Pietro Pellegri. Frá þessu greinir Mirror.

Arsenal, Chelsea og Manchester City hafa öll fylgst grannt með sóknarmanninum unga en nú hafa Jose Mourinho og hans menn blandað sér í hóp áhugasamra félaga.

Heima á Ítalíu er hann á óskalistum Inter, AC Milan og Juventus.

Pellegri skoraði tvö mörk fyrir Genoa gegn Lazio í ítölsku A-deildinni um síðustu helgi og er þegar orðin stjarna á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner