Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. október 2016 13:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Einkunnir úr Bournemouth - Tottenham: Son fær 5
Son náði sér ekki á strik í dag
Son náði sér ekki á strik í dag
Mynd: Getty Images
Hann var ekki sá skemmtilegasti, hádegisleikurinn í enska boltanum í dag. Tottenham sótti Bournemouth heim á Vitality-völlinn í dag og gestirnir gátu komist á topp deildarinnar, en það gekk ekki upp hjá þeim.

Hvorugu liðinu tókst að skora og markalaust jafntefli því niðurstaðan. Tottenham komst upp að hlið Arsenal og Manchester City á topp deildarinnar, en eru í þriðja sæti á markatölu. Bournemouth er núna í níunda sæti með 12 stig.

Það fá nokkrir leikmenn Bournemouth 8 í einkunn fyrir frammistöðu sína, en hjá Tottenham er það aðeins Victor Wanyama sem fær svo háa einkunn.

Hér að neðan má sjá einkunnargjöfina í heild sinni, en hún var að þessu sinni tekin saman af kollegum okkar hjá Sky Sports.

Einkunnir Bournemouth:
Boruc (7), Smith (7), Francis (8), Cook (8), Daniels (8), Ibe (6), Arter (8), Gosling (7), Wilshere (6), King (6), Wilson (6)

Einkunnir Tottenham:
Lloris (7), Walker (7), Dier (7), Vertonghen (7), Rose (7), Wanyama (8), Dembele (7), Lamela (7), Eriksen (6), Dele (6), Son (5)

Maður leiksins:
Harry Arter, Bournemouth
Athugasemdir
banner
banner
banner