Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 23. mars 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Serbnesk landsliðskona í KR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur fengið serbnesku landsliðskonuna Tijana Krstic í sínar raðir fyrir sumarið í Pepsi-deild kvenna.

Tijana er 23 ára gömul en hún spilar sem varnarmaður.

Tijana var síðast á mála hjá Pomurje í heimalandinu en hún hefur þrátt fyrir ungan aldur orðið fjórum sinnum meistari í Serbíu.

Að auki hefur Tijana skorað tvö mörk í sextán landsleikjum með Serbíu.

KR endaði í 8. sæti í Pepsi-deild kvenna í fyrra en Bojana Besic tók við þjálfun liðsins af Eddu Garðarsdóttur síðastliðið haust.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner