Nurnberg 0 - 1 Eintracht Frankfurt
0-1 Haris Seferovic ('66)
0-1 Haris Seferovic ('66)
Rúrik Gíslason lék síðasta korterið þegar Nürnberg tapaði fyrir Eintracht Frankfurt í umspili fyrir síðasta lausa sætið í þýsku efstu deildinni á næsta tímabili.
Gestirnir frá Frankfurt stjórnuðu leiknum í dag, líkt og þeim fyrri, frá upphafi til enda en náðu aðeins að skora eitt mark.
Nurnberg átti ekki skot á rammann, hvorki í fyrri né seinni leiknum, og voru Rúrik og félagar í raun heppnir að tapa leikjunum ekki talsvert stærra.
Athugasemdir