Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 23. maí 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Clichy staðfestir að hann sé á förum frá Man City
Clichy hefur leikið sinn síðasta leik hjá City.
Clichy hefur leikið sinn síðasta leik hjá City.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Gael Clichy hefur staðfest það að hann muni yfirgefa Manchester City þegar samningur hans endar í sumar.

Clichy er einn af sjö leikmönnum sem eru að renna út á samningi í sumar. Hann er aðeins annar leikmaðurinn sem staðfestir að hann sé á förum, en áður hafði Pablo Zabaleta greint frá áformum sínum.

Clichy var spurður að því hvort hann myndi spila með Joe Hart á næstu leiktíð, en Clichy sagði að svo yrði ekki.

Hart hefur verið í láni hjá Torino á tímabilinu, en afar ólíklegt er að hann snúi aftur til Manchester á næstu leiktíð.

„Ég er ekki viss um að Joe verði hér á næsta tímabili," sagði Clichy. „Ég verð ekki hér á næsta tímabili," sagði hann svo.

City þarf að leita sér að bakvörðum í sumar, en Benjamin Mendy hjá Mónakó og Alex Sandro hjá Juventus eru á óskalistanum fræga.
Athugasemdir
banner
banner