Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. ágúst 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
Napoli vill fá Mangala
Mangala á flugi.
Mangala á flugi.
Mynd: Getty Images
Napoli hefur rætt við Manchester City um möguleg kaup á Eliaquim Mangala.

Mangala hefur ekki náð að festa sig í sessi síðan hann kom til City á 32 milljónir punda fyrir tveimur árum síðan.

Þessi 25 ára gamli Frakki hefur ekkert spilað hingað til á tímabilinu.

Pep Guardiola fékk John Stones til Manchester City á dögunum og fyrir hjá félaginu eru Vincent Kompany og Nicolas Otamendi.

Mangala er á eftir þeim í röðinni og reiknað er með að hann fari frá City áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner