Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. maí 2016 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Mourinho og Man Utd komust að samkomulagi
Mynd: Getty Images
Sky segist hafa það frá öruggum heimildarmanni að Jose Mourinho og Manchester United hafi komist að samkomulagi seint í gærkvöldi.

Búið er að semja um samningslengd og laun en það á enn eftir að fínpússa ýmis atriði áður en ráðningin verður gerð opinber.

Ed Woodward, framkvæmdastjóri Man Utd, og Jorge Mendes, umboðsmaður Mourinho, hafa lokið viðræðum sín á milli.

Mourinho átti að skrifa undir samninginn í dag en þeirri undirskrift gæti þurft að fresta vegna örðugleika lögfræðiteyma Man Utd og Mourinho við að leggja lokahönd á ákveðin samningsmál.
Athugasemdir
banner