Hilmar Árni Halldórsson í Stjörnunni, einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar, tók þátt í leik Leiknis R. og Leiknis F. í Inkasso-deildinni í dag á öðruvísi hátt.
Hilmar var sjálfboðaliði hjá uppeldisfélagi sínu í Breiðholti og sinnti gæslustörfum.
Hann veitti dómurum leiksins öryggisfylgd af vellinum og var tilbúinn á börunum ef einhver leikmaður myndi meiðast illa. Sem betur fer þurfti hann þó aldrei að lyfta börunum. Hans menn í Leikni Reykjavík unnu leikinn 2-0.
Virkur félagsmaður þarna á ferð en Hilmar verður inni á sjálfum vellinum þegar Stjarnan mætir Fjölni í Pepsi-deildinni á sunnudaginn.
Hilmar lék með Leikni þar til 2015 þegar hann gekk í raðir Stjörnunnar. Í fyrra var hann í liði ársins og var stoðsendingahæstur í Pepsi-deildinni.
Athugasemdir