Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. júní 2015 11:09
Magnús Már Einarsson
Tilboð Liverpool í Clyne samþykkt
Á leið til Liverpool.
Á leið til Liverpool.
Mynd: Getty Images
The Times, The Telegraph og fleiri enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Southampton hafi samþykkt 12,5 milljóna punda tilboð frá Liverpool í hægri bakvörðinn Nathaniel Clyne.

Hinn 24 ára gamli Clyne mun fara í læknisskoðun hjá Liverpool fyrir helgi.

Hann á að fylla skarð Glen Johnson sem er á förum frá Liverpool þegar samningur hans rennur út í næstu viku.

Clyne hefur staðið sig vel með Southampton en hann vann sér inn sæti í enska landsliðinu á síðasta tímabili.

Með kaupunum á honum hefur Liverpool borgað Southampton um 60 milljónir punda fyrir leikmenn síðastliðið árið en Adam Lallana, Dejan Lovren og Rickie Lambert komu til félagsins í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner