Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 25. júlí 2016 13:30
Magnús Már Einarsson
Stoke kaupir efnilegan Egypta (Staðfest)
Ramadan Sobhi með fyrirgjöf.
Ramadan Sobhi með fyrirgjöf.
Mynd: Getty Images
Stoke hefur keypt Ramadan Sobhi frá Al Ahly í Egyptalandi en kaupverðið gæti orðið allt að fimm milljónir punda ef hann stendur sig vel á Englandi.

Sobhi er ungur kantmaður en hann byrjaði 16 ára að spila með aðalliði Al Ahly í heimalandinu.

Þrátt fyrir að vera einungis 19 ára í dag þá á Sobhi sex leiki að baki með landsliði Egypta.

Sobhi varð einnig egypskur meistari með Al Ahly á síðasta tímabili.

Sobhi er á leið til Orlando þar sem hann hittir liðsfélaga sína í Stoke í æfingaferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner