Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 25. september 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Napoli gæti hrifsað Inglese í janúar
Mynd: Getty Images
Napoli keypti Roberto Inglese af Chievo fyrir 10 milljónir evra á lokadegi sumargluggans.

Inglese var lánaður til Chievo út tímabilið, en nú er útlit fyrir að Napoli hrifsi hann af Chievo strax í janúar.

Napoli vantar sóknarmann til að taka við hlutverki Arkadiusz Milik sem verður frá í langan tíma vegna meiðsla. Milik þarf í aðgerð vegna meiðsla á hné og talað um að hann verði frá í fjóra mánuði.

Að hrifsa Inglese sex mánuðum fyrr er ekki eina leiðin sem Napoli getur farið, en samningslausir leikmenn á borð við Alberto Gilardino og Giuseppe Rossi gætu einnig komið til greina.
Athugasemdir
banner