CSKA 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Andre Schurrle ('67 )
0-2 Andre Schurrle (´88)
0-1 Andre Schurrle ('67 )
0-2 Andre Schurrle (´88)
CSKA Moskva fékk Wolfsburg í heimsókn í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í Rússlandi í dag.
Heimamenn vissu það að tap myndi þýða að þeir væru úr leik í Meistaradeildinni þetta árið.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 67.mínútu þegar Þjóðverjinn Andre Schurrle skoraði fyrir gestina eftir stoðsendingu Bas Dost.
Schurrle gulltryggði svo sigur gestanna með marki skömmu fyrir leikslok. Það þýðir að CSKA Moskva fer ekki lengra í Meistaradeildinni. Þýska liðið er hinsvegar í góðri stöðu á toppi riðilsins.
Athugasemdir