Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 25. nóvember 2016 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Man Utd notaði bara tölvupóst til þess að kaupa Blind
Blind hefur reynst mikilvægur fyrir United
Blind hefur reynst mikilvægur fyrir United
Mynd: Getty Images
Marc Overmars, stjóri íþróttamála hjá Ajax, segir að Manchester United hafi einungis notast við tölvupósta er enska félagið keypti hinn hollenska Daley Blind fyrir tveimur árum.

Talið er að Man Utd hafi borgað það sem nemur 14 milljónum punda fyrir Blind og það gerðu þeir án þess að hafa nokkurn tímann setist niður með Ajax til þess að ræða málin.

Overmars segir að það hafi komið sér á óvart að enska félagið hafi ekki flogið mönnum til Hollands til þess að ræða um kaupin og draga verðið niður.

„Áður fyrr þá hefðu kaup á leikmanni eins og Daley Blind til Manchester United dregist á langinn vegna viðræðna," sagði Overmars við De Telegraaf. „Það gerðist samt ekki hjá honum, þetta var allt gert í tölvupóst; við settumst ekki einu sinni niður til þess að ræða málin."

„Þegar Manchester United samþykkti að borga það sem við vildum fá fyrir Blind þá gekk þetta allt mjög fljótt fyrir sig. Þetta sýnir bara að stórir klúbbar eins og Man Utd hafa ekki alltof miklar áhyggjur af stórum kaupverðum."

Hinn 26 ára gamli Blind hefur reynst mikilvægur leikmaður fyrir Manchester United, en í gær lék hann sinn 100. leik fyrir félagið í 4-0 sigri á Fayenoord.



Athugasemdir
banner
banner
banner