Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 26. maí 2016 14:30
Magnús Már Einarsson
Martin Skrtel á förum frá Liverpool
Skrtel átti erfitt tímabil.
Skrtel átti erfitt tímabil.
Mynd: Getty Images
Martin Skrtel er á förum frá Liverpool en þetta segir Karol Csonto, umboðsmaður hans.

Hinn 31 árs gamli Skrtel var í basli á nýliðnu tímabili og missti sæti sitt í liði Liverpool.

„Ég get sagt að það er 90% öruggt að Martin fari frá Liverpool en það er alls ekki öruggt," sagði Skrtel.

„Besiktas er eitt af þeim félögum sem hafa áhuga en við erum ekki á þeim stað að ég geti staðfest að Martin fari þangað eða annað."
Athugasemdir
banner
banner
banner