Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 26. nóvember 2016 23:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Connor Wickham líklega alvarlega meiddur
Wickham reynir að tækla Gylfa
Wickham reynir að tækla Gylfa
Mynd: Getty Images
Connor Wickham, leikmaður Crystal Palace meiddist í leiknum gegn Swansea í dag og lítur út fyrir það að meiðslin séu alvarleg

Eftir að hafa reynt að tækla Gylfa Sigurðsson í leik liðanna í dag festi Wickham löppina í grasinu og snéri sig. Wickham þarfnaðist aðhlynningar og tafðist leikurinn um 7 mínútur. Þær mínútur nýttu Swansea menn sér.

Wickham sást yfirgefa Liberty leikvanginn á hækjum og með spelku um hnéið.

„Þetta er búið að vera erfiður dagur fyrir okkur því það lítur út fyrir það að Wickham hafi meiðst alvarlega" sagði Alan Pardew, þjálfari Crystal Palace.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner