Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. desember 2017 18:59
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Chelsea og Brighton: Hazard bestur
Mynd: Getty Images
Chelsea hafði betur gegn Brighton fyrr í dag með tveimur mörkum gegn engu marki gestanna.

Alvaro Morata skoraði fyrra mark heimamanna, næst var röðin komin að varnarmanninum Marcos Alonso að skora.

Það voru fjórir leikmenn hjá Chelsea sem fengu átta í einkunn, það voru þeir Alonso, Fabregas, Hazard og Kante.

Hjá Brighton fékk Ryan markvörður liðsins hæstu einkunn.

Einkunnir Chelsea: Courtois (7), Rudiger (7), Azpilicueta (7), Cahill (6), Moses (7), Alonso (8), Fabregas (8), Hazard (8), Kante (8), Bakayoko (6), Morata (7).

Varamenn: Drinkwater (6), Batshuayi (6), Willian (6).

Einkunnir Brighton: Ryan (7), Dunk (6), Duffy (6), Suttner (6), Schelotto (6), Stephens (6), March (5), Kayal (5), Propper (6), Izquierdo (6), Hemed (5).

Varamenn: Knockaert (6), Murray (6).

Maður leiksins: Eden Hazard.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner