Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 27. maí 2018 10:24
Ingólfur Stefánsson
Hafsteinn Briem frá út tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK-ingar hafa orðið fyrir miklu áfalli í Inkasso-deild karla. Hafsteinn Briem mun ekki leika meira með liðinu á tímabilinu. Frá þessu er greint á mbl.is.

Hafsteinn sneri aftur til HK í vetur eftir sjö ára fjarveru. Hann fór meiddur af velli í 3-1 sigri gegn Selfossi á dögunum.

Nú er ljóst að hann er með slitið krossband í hné og verður því frá keppni fram á næsta ár.

HK hefur farið vel af stað í Inkasso-deildinni í sumar. Liðið er á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fjóra leikina.
Athugasemdir
banner
banner
banner