Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. febrúar 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Sigurgeir Sveinn í Hörð (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurgeir Sveinn Gíslason hefur gengið til liðs við Hörð Ísafirði í 4. deildinni.

Sigurgeir Sveinn var fastamaður í vörn BÍ/Bolungarvíkur frá 2003 til 2015 en hann var meðal annars fyrirliði liðsins.

Í fyrra spilaði Sigurgeir með Reyni Sandgerði en hann lék ellefu leiki í 3. deildinni.

Hjá Herði ætlar Sigurgeir að leika framar á vellinum eftir að hafa verið í vörninni allan sinn feril.

Hörður er í A-riðli í 4. deildinni í sumar með GG, Hamri, Hvíta Riddaranum, Ísbirninum, Kórdrengjunum, Kríu og Snæfell/UDN.
Athugasemdir
banner
banner
banner