Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. maí 2017 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Balo: Þarf að drepa Ronaldo og Messi ef ég vil Gullknöttinn
Balotelli kann ekki að forðast spjöldin.
Balotelli kann ekki að forðast spjöldin.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli var spurður út í hvort hann telji sig eiga möguleika á að vinna Gullknöttinn í framtíðinni.

Framherjinn útilokar það ekki en segist líklega þurfa að drepa Lionel Messi og Cristiano Ronaldo fyrst, enda hafa þeir unnið knöttinn síðustu níu ár.

„Ef ég vil vinna Gullknöttinn þá þarf ég að drepa þessa tvo þarna fyrst," grínaðist Balotelli við Bresciaoggi.

„Það sem ég hef gert á ferlinum er ekki nóg, ég verð að gera betur."

Balotelli gerði 15 mörk í 22 leikjum fyrir Nice á tímabilinu en tókst samt að vera rekinn af velli þrisvar sinnum og fá sjö gul spjöld.
Athugasemdir
banner
banner