Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 28. ágúst 2015 12:30
Magnús Már Einarsson
Dagný Brynjars: Get ekki sagt þér frá því
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mikil spenna hjá okkur," segir Dagný Brynjarsdóttir leikmaður Selfyssinga en hún verður í eldlínunni gegn Stjörnunni í úrslitum Borgunarbikarsins á morgun.

Stjarnan sigraði Selfoss 4-0 í bikarúrslitunum í fyrra en þá var Dagný fjarri góðu gamni.

„Ég horfði á þann leik frá Bandaríkjunum og ég er spennt fyrir því að vera partur af þessu núna. Í fyrra var þriðji bikarúrslitaleikurinn sem ég missti af á fjórum árum og ég var orðin svolítið vön því. Síðast þegar ég spilaði hérna 2010 varð ég bikarmeistari með Val og ég er mjög spennt að spila hérna aftur."

Dagný telur að Selfoss liðið sé betur undirbúið fyrir bikarúrslitaleikinn í ár heldur en í fyrra.

„Í fyrra voru margar stelpur að spila í fyrsta skipti í bikarúrslitum. Núna erum við reynslunni ríkari og ég held að það skipti máli."

Hvað þarf Selfoss að passa í leik Stjörnunnar til að vinna á morgun? „Ég skal tala um það eftir leik. Við erum farnar að skipuleggja þetta en ég get ekki sagt þér frá því," sagði Dagný hlæjandi að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner