Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segist vera leiður fyrir hönd Sam Allardyce að hafa misst starf sitt sem þjálfari enska landsliðsins.
Allardyce sagði upp störfum í gær eftir að uppljóstranir frá The Telegraph.
„Ég kann vel við Sam. Ég er leiður fyrir hans hönd," sagði Mourinho í dag.
„Ég veit að þetta var draumastarfið hans. Ég kann vel við hann og ber virðingu fyrir honum."
„Það sem gerðist hefur engin áhrif á samband mitt við hann. Þetta er á milli hans og enska knattspyrnusambands."
Athugasemdir