Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. desember 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Paulinho: Coutinho sér ekki eftir því ef hann fer í Barcelona
Coutinho og Paulinho.
Coutinho og Paulinho.
Mynd: Getty Images
Paulinho, miðjumaður Barcelona, segir að Philippe Coutinho muni ekki sjá eftir því ef hann fer frá Liverpool og gengur til liðs við Barcelona.

Paulinho og Coutinho eru liðsfélagar í brasilíska landsliðinu og þeir hafa rætt saman um Barcelona.

„Ég hef grínast með að fólk sé þegar byrjað að leita að húsi fyrir hann (í Barcelona)," sagði Paulinho en Coutinho bjó um tíma í Barcelona þegar hann spilaði með Espanyol.

„Ég reyni að gefa honum helstu upplýsingar, það sem er mikilvægast fyrir hann og fjölskyldu hans. Kannski var tíminn sem hann bjó hér ekki nægur til að kynnast borginni. Hann veit að Barcelona er góð borg sem hefur upp á allt að bjóða fyrir hann og fjölskyldu hans."

„Þú verður að hugsa um ákvörðunina sem þú ætlar að taka. Ég tel að þú sjáir ekki eftir því ef þú grípur tækifærið."

Athugasemdir
banner
banner