Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 29. maí 2017 17:25
Magnús Már Einarsson
Ernesto Valverde tekinn við Barcelona (Staðfest)
Ernesto Valverde.
Ernesto Valverde.
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde hefur verið ráðinn nýr þjálfari Barcelona en félagið staðfesti þetta í kvöld.

Hinn 53 ára gamli Valverde spilaði með Barcelona frá 1988 til 1990.

Valverde hefur undanfarin fjögur ár þjálfað Athletic Bilbao en hann hætti störfum þar í síðustu viku.

Hann tekur við Barcelona af Luis Enrique sem tilkynnti í mars að hann myndi hætta eftir tímabilið eftir þrjú ár við stjórnvölinn en hann tók við liðinu af Gerardo Martino árið 2014.

Enrique stýrði Barcelona til sigurs í bikarúrslitum gegn Alaves um helgina í lokaleik sínum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner