Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn í sigri Norrköping gegn Falkenberg og var Hjörtur Logi Valgarðsson í byrjunarliði Örebro sem lagði Häcken af velli.
Arnór og félagar eru komnir tímabundið í toppsæti sænsku deildarinnar eftir sigurinn, en þeir eru stigi fyrir ofan Göteborg og Elfsborg sem eiga þó leik til góða.
Arnór og félagar eru komnir tímabundið í toppsæti sænsku deildarinnar eftir sigurinn, en þeir eru stigi fyrir ofan Göteborg og Elfsborg sem eiga þó leik til góða.
Hjörtur Logi og félagar unnu gífurlega mikilvægan leik í fallbaráttunni og eru nú tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar átta umferðir eru eftir.
Christoffer Nyman gerði eina mark Arnórs og félaga.
Falkenberg 0 - 1 Norrköping
0-1 C. Nyman ('52)
Örebro 2 - 0 Häcken
1-0 M. Broberg
2-0 D. Gustavsson ('93)
Athugasemdir