Louis Nicollin, forseti franska knattspyrnuliðsins Montpellier, var heldur betur í stuði um helgina en hann var mætur í teiti þar sem 40 ára afmæli félagsins var fagnað.
Nicollin þykir afar skrautlegur karakter en hann lét meðal annars lita á sér hárið í litum Montpellier er liðið varð franskur meistari fyrir þremur árum.
Hann er 71 árs gamall og gat svo sannarlega skemmt sér í þessu 40 ára afmæli félagsins um helgina en hann ákvað að ,,sörfa" í teitinu eins og sjá má hér fyrir neðan.
Julien Landry, blaðamaður RMC Sport, náði þessu á myndband en hver væri ekki til að gera þetta 71 árs gamall?
L'un des grands moments de la soirée des 40 ans de Montpellier, le paquito du génial président Nicollin.Exceptionnel pic.twitter.com/dXMntgtJnz
— Julien Landry (@Julien_Landry) March 29, 2015
Athugasemdir