Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 30. apríl 2015 14:00
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Óli Hrannar: Mikilvægt að hafa breitt bak
Ólafur Hrannar Kristjánsson.
Ólafur Hrannar Kristjánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spennan hefur verið að byggjast upp síðustu vikur, bæði hjá leikmönnum og fólkinu kringum félagið. Breiðholtið er spennt," segir sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson, fyrirliði Leiknis. Breiðholtsliðið er að fara að leika í efstu deild í fyrsta sinn í sögunni og mætir Val á Hlíðarenda í fyrstu umferð á sunnudagskvöld.

„Þjálfararnir eru búnir að undirbúa leikmenn vel fyrir þetta og láta vita af því hvers er að vænta. Þetta umfang er miklu stærra og meira en verið hefur í 1. deildinni. Leikmenn eru tilbúnir í þetta."

Leikni er spáð neðsta sæti. Ólafur segir leikmenn tilbúna að taka meiri gagnrýni og aukinni umfjöllun sem fylgir því að spila í Pepsi-deildinni.

„Menn verða að vera með breitt bak ef þeir ætla að spila í þessari deild. Það er miklu erfiðara að takast á við þetta ef menn geta ekki tekið gagnrýni."

„Ég held að þetta verði hörkuleikur á sunnudaginn. Við förum í alla leiki til að ná í eins góð úrslit og við getum. Valsmenn ætla eflaust að slátra nýliðunum á heimavelli í fyrsta leik."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner