Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 30. ágúst 2014 13:33
Jóhann Ingi Hafþórsson
England: Enn tekst Manchester United ekki að vinna
Angel Di Maria spilaði fyrstu 70 mínúturnar.
Angel Di Maria spilaði fyrstu 70 mínúturnar.
Mynd: Getty Images
Burnley 0-0 Manchester United

Slæm byrjun Louis van Gaal hjá Manchester United heldur áfram.

Þrátt fyrir að Angel Di Maria hafði farið beint í byrjunarliðið gegn Burnley á útivelli þá var það Burnley liðið sem byrjaði betur. Manchester liðið leit ekki vel út í vörninni frekar en í fyrri leikjum.

United liðið komst hins vegar meira inn í leikinn eftir því sem leið á hálfleikinn og leit Di Maria vel út en ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik.

Manchester United reyndu allt hvað þeir gátu að skora í seinni hálfleik. Van Persie átti meðal annars skot sem Dean Marney náði að bjarga á línu.

En allt kom fyrir ekki og enn ein vonbrigðin undir stjórn van Gaal staðreynd.


Athugasemdir
banner
banner
banner