Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. október 2014 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Stórkostleg stoðsending Suarez í gær
Luis Suarez byrjar vel hjá Barcelona
Luis Suarez byrjar vel hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Barcelona og Espanyol spiluðu í gær um Ofurbikar Katalóníu en eftir venjulegan leiktíma var staðan 1-1. Barcelona vann í vítaspyrnukeppni, 4-2.

Barcelona komst yfir með marki frá Gerard Pique en Luis Suarez lagði upp markið og gerði hann það glæsilega.

Suarez tók skemmtilegan snúning áður en hann vippaði boltanum á Pique sem gat ekki annað en klárað dæmið.

Hægt er að sjá stoðsendinguna hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner